Leikskólinn Kjarrið okkar
Rjúpnahæð 1 Garðabæ
Velkomin á heimasíðuna okkar DagskipulagMyndir Áhugaverðir tenglarForeldraráðGestabókGullkornInflúensa
Upplýsingar
Starfsfólk
Gjaldskrá
Námsskrá Kjarrsins okkar
Námsskrá skólahóps
Námsskrá skólahóps

Kjarrið okkar vinnur samkvæmt Aðalnámskrá leikskóla. Talsvert skipulagt starf er unnið með elstu börnum leiskólans, en þó leggjum við áherslu á frjálsan leik þar sem hann er undirstaða alls náms.
Á Kjarrinu okkar er lagt mikið upp úr hlýlegu umhverfi og persónulegum samskiptum þar sem allir starfsmenn koma að kennslu og umönnun allra barnanna.

Vetrarstarfið byrjar um miðjan september. Skipulagt starf er milli kl. 10.00 og 14.30 daglega. Auk þess fara tveir elstu árgangarnir í leikfimi í Mýrinni einu sinni í viku og sundnámskeið í einn mánuð að hausti og einn mánuð að vori.
Hreyfing:
Á Kjarrinu okkar er lögð mikil áhersla á hreyfingu. Börn hafa mikla þörf fyrir að hreyfa sig frjálst og óhindrað. Hreyfing stuðlar að andlegri og líkamlegri vellíðan þar sem börn fá mikla útrás.
Með skipulagðri hreyfingu eflum við líkams- og hreyfiþroska barna
.
Markmið:
·         Efla heilsu, styrk og þol
·         Auka sjálfstraust
·         Efla samhæfingu, jafnvægi og öryggi
·         Læra að fara eftir fyrirmælum og reglum
·         Efla samstöðu og frumkvæði
·         Efla hugtakaskilning
Leiðir:
·         Íþróttakennsla í Mýrinni 1 x í viku
·         Sundkennsla í Mýrinni að hausti og vori (8 stundir)
·         Útikennsla 1 x í viku
·         Útivera
·         Frjáls leikur (púðar, rá o.fl.)

Útikennsla:
Útikennsla auðgar og styrkir allt nám, auk þess að vera holl bæði fyrir líkama og sál.
Við tengjum útikennsluna öllum námssviðunum þar sem börnin læra að njóta og umgangast náttúruna.

Markmið:
·         Læra að útbúa sig fyrir útiveru
·         Auka þol og þrek
·         Þjálfast í að nota skynfærin til að skynja og uppgötva umhverfi sitt
Leiðir:
·         Skipulögð útikennsla 1 x í viku – 2 elstu árgangar
·         Meta veðuraðstæður og útbúa sig eftir veðri
·         Læra að nota skynfærin með því að horfa, hlusta, lykta og snerta
Málörvun:
Unnið er með verkefnið Markviss málörvun. Þar er lögð áhersla á að styrkja hljóðkerfisvitund og auka málvitund.
Í daglegum samverustundum er lesið, sungið og börnin hvött til þess að segja frá.
 
Markmið:
·         Efla tungumálið
·         Auka orðaforða og hugtök
·         Auka sjálfstraust
·         Kynnast bók- og tölustöfum
·         Kynna orðflokkagreiningu
Leiðir:
·         Markviss málörvun 2 x í viku
 
·         Hlustunar- og rímleikir
·         Lestur og hlustun
·         Tjáning
·         Tígulljóð
Enska:
Markmið:
·         Kynnast ensku
·         Öðlast einfaldan orðaforða
·         Fái hvatningu til að tala/læra ensku
Leiðir:
·         Þulur, söngvar og myndir
·         Talæfingar
Stærðfræði:
Markmið:
·         Kynnast tölustöfum og táknum
·         Kynnast formum og hugtökum
·         Kynnast stærðarhugtökum og mælingu
·         Læra að flokka og búa til mynstur
Leiðir:
·         Skipulagðar vinnustundir 1 x í viku
·         Útikennsla
·         Verkefnabók í frjálsu vali
·         Hvetjandi efniviður til talningar og mynsturgerðar
·         Unit block kubbar
Myndsköpun:
Myndsköpun er mikilvægur tjáningarmiðill sem eflir sjálfstraust og fagurþroska barnsins.
Á Kjarrinu okkar fá börnin að kynnast mismunandi efnivið í leik og starfi.
Markmið:
·         Samhæfing augna og handa
·         Þjálfa fínhreyfingar
·         Efla fagurþroska og sköpunarþörf
·         Efla sjálfstæði
Leiðir:
·         Skipulögð myndlistarkennsla (1 x í viku)
·         Frjálst aðgengi að efnivið
·         Fjölbreyttur efniviður
·         Nægur tími til listsköpunar
Tónlist:
Lögð er mikil áhersla á tónlist í Kjarrinu okkar. Í gegnum tónlist þroskar barn með sér næmi fyrir hljóðum,
hreyfingu og hrynjandi.
Markmið:
·         Læri að syngja í hóp
·         Læri að hlusta og njóta
·         Kynnist fjölbreyttum tónlistarstílum
·         Nái einföldum tón og takti
·         Kynnist mismundi hljóðfærum
Leiðir:
·         Skipulagður tónlistartími 1 x í viku
-      Söngur, leikir og rythmi
-      Skynja mun á styrkleika – sterkt/veikt
-      Læra að nota hljóðfæri
-      Kynning á hljóðfærum
-      Hlusta á tónlist frá ólíkum menningarheimum
·         Söngur í samverustundum 2 x á dag
·         Hlustað á tónlist
Náttúra og umhverfi:
Nauðsynlegt er fyrir börn að kynnast fjölbreytileika náttúrunnar, læra að virða hana og njóta.
Markmið:
·         Kynnast náttúrunni og breytingum hennar
·         Læra að umgangast og njóta
Leiðir:
·         Útikennsla 1 x í viku
·         Útivera
·         Vettvangsferðir
·         Unnið með efnivið úr náttúrunni
Menning og samfélag:
Mikilvægt að börn kynnist smám saman samfélaginu sem þau lifa í og læri að varðveita menningararf sinn.
Markmið:
·         Kynnist nánasta umhverfi sínu
·         Kynnist samfélaginu sem þau lifa í
·         Kynnist ólíkum menningarheimum
Leiðir:
·         Útikennsla
·         Kynning á tónlist frá ólíkum menningarheimum
·         Hátíðir og hefðir
·         Skipulagðar ferðir
-      Safnferðir
-      Sveitaferð
-      Kirkjuferð
-      Tónleikar