Leikskólinn Kjarrið okkar
Rjúpnahæð 1 Garðabæ
Velkomin á heimasíðuna okkar DagskipulagMyndir Áhugaverðir tenglarForeldraráðGestabókGullkornInflúensa
Gullkorn
Ég fer stundum í harðfiskaleik í fimleikunum
*Stórfiskaleik


Barn: Ég kann að segja "Ég fíla, dilla, dilla á ensku
Kennari: Hvernig er það !
Barn : Ég fíla move it, move it...... 

"Finnum okkur"
*felum okkur

 "Það þarf að krydda þennan blýant"
*ydda
Kennari : Hvað er að frétta af litla bróður ?
Barn :  Það er búið að útskýra hann
*skíra
 
Barn :    Ég ætla að verða rannsóknarmaður
Kennari : ..og hvað ætlar þú að rannsaka ?
Barn :    “Kjötætur”
Kennari : það hlýtur að vera gaman.
Barn :   það er betra en að vera fóstra
 
Barn 1 : Ef maður drekkur ekki mjólk  þá brotna í manni beinin.
Barn 2 : Já , þá verður bara húðin eftir.
 
“Ummm. Það er drullumall í matinn”
 
 “Mamma mín er með skegg á fótunum”
  *hár
 
“Vitið þið hvað gerðist fyrir bróðir minn....
Hann er orðin unglingur”
“Ég er með nagla í tönninni
*holu
 
Barn 1 : Sjáðu, þetta er eins og tré
Kennari : þetta er spergilkál, svona íþróttanammi
Barn 2 : Já ...svona íþróttatré.
 
“Hún tók fram úr mér að tala”
  
“Hani, krummi, prumpusvín, hestur...”
*hundur, svín
 
Barn 1 : Þú drepur engil ef þú ert svona óþekk
Barn 2: Nei maður drepur bara engil ef maður er að ljúga
 
 “Bráðum verð ég fjögurra ára svo verð ég stór”
 
“Ég er sko lítill unglingur og er ekkert hræddur við sjálfan mig"


“Þegar ég er orðin stór ætla ég að vera mótorhjólatöffari og giftast konu sem gerir öll húsverkin heima. Þá get ég alltaf verið úti á mótorhjólinu.”
 
Barn:     Hvað er þetta sem er ofan á bollunum?
Kennari: Þetta heitir KÚMEN
Barn:    Já, hálfur maður og hálf kú
 
 “No þýðir no og yes þýðir já”
 
Kennari: Ertu nokkuð með nammi?
Barn:    Nei, ég er bara andfúl, ég borðað svo mikið nammi í gærkvöldi
 
Barn :   Á ég að segja þér svolítið, ég er alveg að verða kínversk.
Kennari: Nú af hverju?
Barn:    Af því að ég er alveg að byrja að því.
Kennari: Hverju
Barn:  Að borða hrísgrjón
 
“Ég er komin með “heyrnarbólgu” það eru svo mikil læti hérna úti” *eyrnabólgu
 
“Pabbi minn var einu sinni með krullur, en svo þróaðist hann.
 Hann segir að allir þróist”
 
“Það er slátrun heima hjá mér til þess að slátra grasið með
*sláttuvél   -   *slá
 
“Pabbi minn missti egg á gólfið og þá kom djús”
 
“ Ég get ekki smyrjað kexið mér er svo illt í fótunum”
 
“ Við erum ekki fólk , við erum strákar”
 
“ Ég borða ekki grænmeti, ég er með ofnæmi fyrir því”
 
“ Viltu geyma taglið mitt
 *Teyjuna mína
 
“ Heyrðu er nokkuð vont að vera með svona brúna augasteina ?”
 
Kennari : Sunnudagaskóli heitir sunnudagaskóli af því 
                 hann er alltaf á sunnudögum

Barn:      “Já ! alveg eins og laugardagshöll 
                *
Laugardalshöll
 
 “Systir mín er með buggupex
  *gubbupest
 
 “ Krakkar, það er blómasúpa í matinn
 *blómkálssúpa
 
 “ Það er ennþá pappír á kartöflunni minni"
   *hýði
 
“Ég borða rúmbrauð
*rúgbrauð
 
“ Maður getur alveg notað ömmu sína fyrir vin”
 
Barn 1: Kannt þú ekki mannasiði
Barn 2: Nei, bara konusiði
 
 “ Má ég fara út á hárinu”
 
“Heyrðu veistu hvað tannlæknir gerir? 
 Hann borar í nefið”
 
 “Sjáðu gorminn sem hún er með!”
*orminn
 
“Mjólk er góð fyrir bennur og tein
*tennur og bein
 
“ Hvar eru hólarnir á sokkunum”
 *hælarnir
 
“ Maður getur alveg verið á eyrunum það er svo gott veður”
 
“Það voru Ýsur í þessum kassa”
*ísar
 
Kennari : Í dag verður sakk og hagettí í matinn
*hakk og spagetti
 
“ Þetta er næstum alveg eins og hafragrautur, bara aðeins meira vont( sagt um makkarónugraut )
 
“ Ég fékk líka kanínusykur
*kanilsykur
 
“ Það er líka til jólasveinn sem heitir rassaskellir”
 
Umræða í hópastarfi
Barn 1 : ......þá verður hann unglingur
Barn 2: .......alveg eins og kjúklingur
 
“ Ég get ekki drukkið meira af þessari mysu, þá verð ég svo súr”
(sagt á þorrablóti leikskólans)
 
“Afi minn á svona stóra byssu til að skjóta gæsir og bjúgur
*rjúpur
 
Barn: Geta karlar fætt börn ? 
Kennari: Nei !
Barn: Hvernig verða þá fötluðu börnin til?
 
“Ef að konur eru ástfangnar af konum þá eru þær pempíur”
 
 
“Hvar er úlfur gamla klukka”
(Var í leiknum Hvað er klukkan gamli úlfur)
 
 
Barn: “Pabbi minn er miklu sterkari en þú, hann getur
haldið á meira en konu....”

Kennari:   Nú ???
Barn: “já ömmu .....”
 
Barn 1 : Það er lykt af honum
Kennari: Hvernig lykt ?
Barn 1: Öðruvísi lykt
Barn 2 : Svona strákalykt
Barn 1 : Nei, prumpulykt
 
Ég á líka svona bók heima en hún talar ekki eins og við
(er á ensku)
 
 
Barn liggjandi í sólbaði
Barn: AHHH þetta er svo undarlegt
Kennari: þú meinar yndislegt
Barn: Já , það líka
  
 
Hann er veikur, hann er með hjólabólu
*hlaupabólu
 
Barn: Má ég fara í rennibrautaleikinn ?
Kennari: Já í smá stund
Barn: Í langa eða stutta smá stund ?
 
Ég er með heyrnarskjól
*Eyrnaband
 
Foreldri “ Hvað fenguð þið að drekka ?
Barn : Æ, svona bollutippi
 *Ástarpungar
 
 
Ó frímerkið datt af mér
*endurskinsmerkið
 
 
Barn 1: Pabbi minn er 38 ára
Barn 2: Neits, þá væri hann löngu dáinn !
 
Barn 1: “Þegar þú verður engill  þá verður þú bein”
Barn 2: “Nei maður verður sál”
 
 
“Ég er með særhæli
*hælsæri
  
“Hundurinn minn átti aldrei hvolpa,  af því að hann var karlmaður”.
 
“Ég vil ekki taka augun úr mér  eins og amma gerir” ???
 
Kennari: “Hvað ertu að gera”?
Barn: “Klippa”.
Kennari: “ En hvað er þetta”? – bendir á skærin.
Barn: “Klipp”!
 
Barn: “Bræðurnir mínir eru í stíl”.
Kennari: “Meinarðu tvíburar”?
Barn: “Já”.
 
Barn: “Hann er að skíta í himininn”.
Kennari: “Skíta, hvernig þá”?
Barn: “Með byssunni”!
 
Barn: “Þessi maður er að taka hann”.
Kennari: “Það er allt í lagi, þetta er pabbi hans”.
  
“Hann  er frosinn – hann talar ekki neitt”!
 
 
Einn að skjóta fíflahausum upp í brekku.
-Ég er að “skíta” alveg upp í brekku!
 
 Barn: “Ég borða ekki svona lýs”.
*perur
 
Klósettið er batteríislaust
*sprungin pera
 
 
“Ætlar Bjúgnakrækir að koma hingað?”
“nei”
Af hverju eru þá bjúgu í ofninum?
*Tvö úrbeinuð lambalæri í ofninum
 
 
Kennari : við eigum að skiptast á og leyfa öðrum að leika með dótið okkar
Barn: já, ég leyfi mömmu minni alltaf að búa til matinn!
 
 
Barn : Hvað er þetta
Kennar : Engispretta
Barn:  Engilspretta!!!!