| | | |  | | Leikskólinn Kjarrið okkar | | Rjúpnahæð 1 Garðabæ |
|
|
| | | | | | | |
28.05.10
Jæja, þá er sumarið komið og skólabörnin búin að fara í útskriftarferð. Þau áttu frábæran dag á tjörninni og húsdýragarðinum. Myndir frá ferðinni og fleiri skemmtilegar myndir eru komnar inn.
Óskum þeim sem eru á leið í sumarfrí góðra stunda.
30.04.10
Myndir frá apríl mánuði komnar inn.
Í næstu vikur eru foreldraviðtölin - munið að skrá ykkur á listann!
Minnum einnig á starfsdagana 12. og 14. mai.
19.04.10
Eftir páska hafa verðandi skólabörn verið á faraldsfæti. Þau eru búin að heimsækja Hofstaðaskóla, fara í umferðarskólann og hlusta á söguna um hann Maxi mús í sinfoníunni. Núna á miðvikudaginn 21. apríl er svo vorskóli hjá þeim sem fara í Hofstaðaskóla.
Listahátíð barna er í næstu viku og hefst hún á opnu húsi nk. laugardag í öllum leikskólum bæjarins. Á Kjarrinu er húsið opið á milli kl. 11 og 13. Þar verða verkefni vetrarins til sýnis og börnin ætla að syngja. Gaman væri að foreldrar kæmu með eh. hollt og gott á hlaðborðið, en þar verður einnig boðið upp á kaffi og djús.
Á mánudeginum er svo opnunarhátíð á Garðatorgi en þangað munum við ganga í skrúðgönu og taka Hæðarból og Bæjarból með okkur. Á Garðatorgi munum við fá að sjá hana Fíu sól og Ingó í veðurguðunum kemur og syngur. Þegar dagskránni er lokið munum við fara og skoða sýningu leikskólabarna á nýja torginu, en við munum að sjálfsögðu eiga verk þar.
Mánudagurinn er búningadagur í Garðabæ og ætlum við að klæðast kúreka og indjánafötum í tilefni dagsins og halda svo hið árlega kúreka og indjánaball eftir hádegi til að fagna sumri.
Linkur inn á síðu listadaga - www.gardabaer.is/Pages/3325
31.03.10
Myndir frá íþróttadeginum komnar á netið
GLEÐILEGA PÁSKA!
26.03.10
Mikið hefur verið að gera í þessari viku. Eldri börnin fóru í heimsókn í Nóa síríus á mánudaginn, foreldrum var boðið með í leikfimi og nokkrir komu einnig að horfa á sundtíma hjá okkur. MYNDIR FRÁ ÞESSU KOMNAR INN. Með þessu er vetrarstarfinu lokið og við tekur vorið, með meiri útiveru, undirbúning undir listahátíð og margt fleira.
ÍÞRÓTTADAGURINN ER Á NÆSTA MIÐVIKUDAG!! en þá förum við með öll börnin í íþróttahúsið og skemmtum okkur í leikjum og þrautum.
12.03.10
Nokkrar myndir komnar á vefinn!
Allt hefur gengið vel sem af er mars-mánaðar, allir kátir og hressir með þennan stutta vetur sem kom til okkar og vorið sem nálgast nú óðfluga.
Í næstu viku fellur því miður niður leikfimi og sund hjá eldri börnunum og vonumst við til að geta bætt inn einum sundtíma í staðinn.
26.02.10
Nú eru komnar inn myndir af "mömmukaffinu" og splunkunýjar snjómyndir frá því í gær. Vekjum einnig athygli á því að við höfum gert breytingar á matseðlinum, nú eru fiskidagar á þriðjudögum og fimmtudögum.
19.02.10
Þessi vika hefur verið "frjáls" vika hjá okkur. Haldið var upp á bolludag, sprengidag og öskudag. Elstu börnin saumuðu öskupoka auk þess sem búningaball með öllu tilheyrandi var haldið á öskudaginn. Myndir af ballinu komnar inn.
Næsta mánudag verður mömmukaffið kl. 8.30 - 10, en þar verður öllum mömmum boðið upp á vöfflur. Einhver misskilningur var í skóladagatalinu okkar, þar sem búið var að ákveða að konudagur væri alltaf á undan bolludegi, en svo er víst ekki og höldum við því upp á daginn nk. mánudag.
Önnur breyting verður á skóladagatalinu, en við ætlum að fara af stað með sundið strax í næstu viku.
12.02.10
Jæja, febrúar hálfnaður áður en maður veit af. Mikið búið að vera um heimsóknir síðustu vikurnar. Margrét æskulýðsfulltrúi kom til okkar og einnig fengum við 6 ára bekk úr Hofstaðaskóla í heimsókn. Þá fóru elstu börnin á bókasafnið í tilefni kisudagsins og svo var farið með öll börnin að sjá Skoppu og Skrítlu, en Andri Fannar hennar Hjördísar leikur því. Næsta vika er frjáls vika, þ.e. hin hefðbundna dagskrá fellur niður. Haldið verður upp á bolludag og sprengidag auk þess sem hið árlega öskudagsball verður haldið með pomp og prakt á öskudaginn.
NÝJAR MYNDIR KOMNAR INN
29.01.10
Myndir úr myndlistinni komnar inn, en þar hafa börnin verið að vinna mjög skemmtileg verkefni. Eldri deildin er búin að vinna með skókassa, en yngri börnin máluðu með bolta.
22.01.10
Gleðilegt ár! Nú er starfið komið á fullt og nýjar myndir komnar á síðuna. Í dag, bóndadaginn buðu börnin pöbbunum í kaffi og pönnsur og síðan var Þorranum fagnað með þorrablóti í hádeginu. En þar var sviðakjamminn og hákarlinn mest spennandi og auðvitað smökkuðu flestir eins og sönnum íslendingum sæmir.
23.12.09
Í morgun dönsuðum við í kringum jólatréð - nokkrar myndir frá því inni á myndasíðunni.
GLEÐILEG JÓL!
17.12.09
Myndir frá jólaballinu og heimsókn í Sívertsen hús komnar á myndasíðuna!
Síðan verður næst uppfærð á nýju ári.
Starfsfólk Kjarrsins okkar óskar börnum og fölskyldum þeirra, gleðilegra jóla og þökkum fyrir ánægjulegt og skemmtilegt ár sem er að líða.
04.12.09
Þá er þessi fyrsta vika í jólaundirbúningi liðin og allir að komast í jólaskap. Á þriðjudag var farið í rútu í Vídalínskirkju að hlusta á jólaboðskapinn og má sjá myndir frá ferðinni hér á vefnum. Föndurvinna og skreitingar eru komnar á fullt og nokkur börn byrjuð að mála stígvél/skó til að setja út í glugga.
Dagskráin fram að jólum:
- 1.desember - Vídalínskirkja
- 9.desember - Jólaleiksýning kl. 14.30
- 16.desember - Jólaball leikskólans
- 18.desember - Heimsókn í Sívertsen hús kl. 10
30.11.09
Myndir frá síðustu viku komnar inn. Þar eru að finna myndir frá sundinu og foreldraföndrinu.
20.11.09
Róleg vika á Kjarrinu. Frábært hvað allir stóðu sig vel í að muna eftir sundfötum á miðvikudaginn! Börnin eru að standa sig frábærlega í sundinu. Nokkrir ætla að vera duglegir í baðinu heima og æfa sig að blása í vatnið, en allir hafa nú náð því að kafa niður á botn eftir hlut sem er frábær árangur!
Nokkrar myndir frá vikunni komnar inn.
13.11.09
Ömmu og afakaffið var haldið í morgun og hefur aldrei annar eins fjöldi verið saman kominn í Kjarrinu. Börnin sungu og buðu upp á hjónabandssælu og brauðbollur í tilefni dagsins. Myndir frá kaffiboðinu eru komnar inn.
06.11.09
Myndirnar komnar inn.
- Sundið verður framlengt um eina viku, svo börnin missa ekki úr vegna forfalla í vikunni.
- Næsta föstudag verður ömmu og afakaffi á Kjarrinu kl. 9.30 - 10.30, vonandi sjá sem flestir sér fært að mæta.
30.10.09
Myndir frá vikunni sem er að líða komnar inn. Bendi á að slá inn "íþróttaálfurinn", "útivera" og "útikennsla, en þar er að finna fullt af skemmtilegum myndum.
23.10.09
Myndir frá þemavikunni komnar á vefinn, undir þemavika
í næstu viku er mikið að gera á Kjarrinu. Á þriðjudaginn er alþjóðlegi bangsadagurinn og fara elstu börnin í heimsókn á bókasafnið í tilefni af því. Á miðvikudaginn eigum við von á íþróttaálfinum í heimsókn og verður þá farið með öll börnin í íþróttahúsið að hitta hann. Eftir hádegi á fimmtudaginn byrjar svo sundið.
16.10.09
Myndir vikunnar komnar á síðuna, þ.á.m. myndir frá heimsókn slökkviliðsins, en þær eru
skráðar undir slökkvilið.
MUNIÐ STARFSDAGINN E.H. NÆSTKOMANDI FÖSTUDAG!
15.10.09
Í næstu viku fellur allt venjulegt starf niður, en í staðinn verður unnið að þemanu "landið okkar Ísland". Sú vinna verður alltaf unnin milli kl. 10 og 11.30. Nokkuð verður um ferðir út fyrir leikskólann og byðjum við foreldra að fylgjast vel með því.
Dagskrá næstu viku:
|
|
Mánudagur
|
Þriðjudagur
|
Miðvikudagur
|
Fimmtudagur
|
föstudagur
|
|
04/05
|
Fjöruferð
|
Unnið úr fjöruferðinni
|
‘Island skoðað/
föndur
|
Efnisveitan
Kl. 11 – 12
Lagt af stað kl.10
|
Söngstund
Gamlir leikir og dansar
Náttfataball
|
|
06/07
|
Steinamálun
|
Vettvangsferð
|
Húsdýrin okkar
|
Föndur
|
09.10.09
Nýjar myndir komnar inn:)
MUNIÐ FORELDRAVIÐTÖLIN !
02.10.09
Jæja, nú er búið að hlaða inn myndum frá því í þessari viku. Sá galli er á forritinu, að myndirnar koma ekki endilega efst heldur raða sér í stafrófsröð, en í leitarglugganum getið þið slegið inn t.d. myndlist og koma þá upp allar myndir úr myndlistinni. Í októbermöppunni merki ég dagsetningar á myndirnar til að auðvelda leitina, nú getið þið þá einnig slegið inn dagsetningu til að fá myndir frá ákveðnum degi t.d. 02.10.09 og eiga þá myndir dagsins að koma upp.
25.09.09
Síðasta vika var mjög skemmtileg. Auk hefðbundins hópastarfs var elstu börnunum boðið í Þjóðleikhúsið að sjá Búkollu.
Á föstudaginn var starfsdagur og börnin í fríi, en við nýttum tímann vel í þrif, lagfæringar og fl. tilfallandi sem erfitt er að gera í dagsins önn.
NÝAR MYNDIR KOMNAR Á MYNDASÍÐUNA!
|
| |
| |
| |
| |